Fæst okkar leiða hugann að heilsu heilans fyrr en eitthvað fer úrskeiðis. Við gleymum nafni, missum af mikilvægum fundi eða upplifum svokallaða heilaþoku sem virðist ekki ætla að lyfta sér. Þessu mynstri vill tæknifyrirtækið Zest Science breyta með nýju smáforriti, PREMAZ, sem færir vitræna skimun út úr læknastofum og inn í daglega heilsurækt fólks.
Í nýju samstarfi við breska heilsu- og vellíðunarfyrirtækið Health is One verður PREMAZ-forritið notað til að bjóða upp á aðgengilegar, 10 til 15 mínútna stafrænar mælingar á heilastarfsemi. Þetta markar tímamót, því hingað til hefur heilaheilsa gjarnan verið meðhöndluð sem neyðarástand þar sem fyrst er gripið inn í þegar einkenni eru orðin áberandi. Nú er stefnt að því að fólk fylgist með vitrænni heilsu sinni á jafn eðlilegan hátt og það fylgist með blóðþrýstingi, svefni eða streitu.
En hvernig virkar tæknin? Hefðbundin minnispróf spyrja oftast einfaldrar spurningar: Manstu þetta eða ekki? PREMAZ, sem þróað var í samstarfi við Cambridge-háskóla, kafar hins vegar dýpra og mælir svokallaða minnisnákvæmni (e. memory precision). Það er til dæmis einn hlutur að muna að þú skildir lyklana eftir einhvers staðar heima hjá þér. Það er allt annar og flóknari hlutur að muna nákvæmlega að þeir liggja á eldhúsbekknum, við hliðina á ávaxtaskálinni, undir póstinum frá því í gær.
Það er einmitt þessi hárfína nákvæmni sem byrjar oft að daprast fyrst þegar vitræn geta hrakar. Innan öldrunarfræði og langlífisrannsókna er lögð mikil áhersla á að grípa inn í ferlið sem allra fyrst. Með því að gera heila- og minnismælingar að hluta af almennri heilsugæslu skapast dýrmætt tækifæri til að vernda starfsemi heilans til lengri tíma og seinka vitrænnni hnignun áður en hún verður að alvarlegu vandamáli.