Bandaríska geimvísindastofnunin (NASA) hefur tryggt sér far fyrir mikilvægan vísindabúnað til tunglsins með nýjum 180 milljóna dala samningi við einkafyrirtækið Intuitive Machines. Förinni er heitið á suðurpól tunglsins árið 2030 og er leiðangurinn hluti af Artemis-áætluninni svokölluðu, sem miðar að því að koma mönnum aftur til tunglsins. Þetta er í fimmta sinn sem NASA nýtir sér þjónustu fyrirtækisins til að koma farmi út í geim.
Tunglfarið mun bera um 75 kíló af mælitækjum og smájeppum, þar á meðal fimm tæki frá NASA. Búnaðinum er sérstaklega ætlað að rannsaka efnasamsetningu og byggingu tunglryksins (e. regolith) á suðurpólnum, auk þess að kortleggja geimgeislun á svæðinu. Suðurpóll tunglsins þykir afar áhugaverður fyrir vísindamenn þar sem talið er að þar leynist vatnsís í skuggsælum gígum, sem gæti skipt sköpum fyrir framtíðarlandnám manna.
Eitt af áhugaverðari tækjunum í farminum er sérhæft myndavélakerfi, kallað SCALPSS, sem mun fylgjast grannt með lendingunni sjálfri. Kerfið á að mynda í þrívídd hvernig útblástur frá hreyflum geimfarsins þyrlar upp tunglryki þegar það nálgast yfirborðið. Að sögn sérfræðinga NASA eru slíkar rannsóknir lykilatriði til að skilja hvernig stærri og þyngri geimför munu athafna sig á tunglinu í framtíðinni. Þessar ómönnuðu rannsóknarferðir eru því mikilvægur undirbúningur, ekki aðeins fyrir mannaðar tunglferðir, heldur einnig fyrir langferðir til Mars síðar meir.