Margir grípa gjarnan til sykurlausra drykkja eða ketó-snakks í von um að velja hollari kost fyrir líkamann. Ný rannsókn varpar þó skugga á þessa saklausu ímynd. Sætuefnið erýtrítól (e. erythritol), sem er eitt það allra vinsælasta í heilsuvörum í dag, gæti verið mun skaðlegra en áður var talið.
Vísindamenn hafa komist að því að erýtrítól hefur bein og neikvæð áhrif á frumur í æðakerfi heilans. Efnið virðist draga úr getu æðanna til að slaka á og víkka út, sem er bráðnauðsynlegt fyrir eðlilegt blóðflæði. Þar að auki veldur það auknu oxunarálagi, sem er þekktur orsakavaldur frumuskemmda í líkamanum og flýtir fyrir öldrun frumna.
Það sem veldur þó einna mestum áhyggjum er áhrif sætuefnisins á blóðtappa. Rannsóknin sýnir að erýtrítól dregur úr getu líkamans til að brjóta niður og leysa upp blóðtappa. Þegar æðar eiga erfiðara með að víkka út og blóðtappar leysast ekki upp sem skyldi, skapast kjöraðstæður fyrir stíflur sem geta leitt til heilablóðfalls.
Þessar hættulegu breytingar á æðakerfinu virðast geta átt sér stað jafnvel þótt neyslan á sætuefninu fari ekki yfir það sem telst eðlilegt í daglegu lífi. Niðurstöðurnar benda því til þess að neytendur ættu að vera á varðbergi og að full ástæða sé til að endurmeta öryggi þessara vinsælu gervisætuefna.